áttfættar ófreskjur
Þetta er líklega ein allra besta bíómynd sem ég hef séð í langan tíma.
Indriði 14.6. 2008 ---
og þú segir...(1)
manneldisóráð
ég er ekki viss um að það viti á gott, þegar fituskánin á gleraugunum byrgir manni svotil fullkomlega sýn á nýsteiktan matinn.
Indriði 23. 5. 2008 ---
og þú segir...(0)
of mikið gaman
já, að sjálfsögðu hefndist mér fyrir allt þetta gaman um daginn, og var umhendis sendur kokteill af alls kyns krankheitum til að jafna reikninginn minn í gleðibankanum.
Það getur bara ekki verið hollt að drekka svona mikið te!
Indriði 19.5. 2008 ---
og þú segir...(0)
hipp OG kúl
Indriði 17.5. 2008 ---
og þú segir...(0)
kaninchenzuchtbeauftragter
Mér hefur verið falin sú ábyrgðarfulla staða að sjá um að fóðra kanínur nágranna minna yfir helgina.
Indriði 9.5. 2008 ---
og þú segir...(0)
kláði og horn
í gær fögnuðu doktorsnemar við GFZ sumarkomunni. Í garðinum við eitt húsið hér á Loftskeytafjalli var komið fyrir grilli þar sem áhugasamir gátu grillað sér pylsur og annað góðgæti. Þess á milli lá fólk í grasinu og lét síðustu geisla síðdegissólarinnar grilla sjálft sig.
Samhliða þessari samkomu var svo haldinn sumarfagnaður moskítóflugna í Berlín og nærsveitum. Þáttakendur létu síðdegissólina verma vængina milli þess sem nartað var í grillaða doktorsnema og annað góðgæti.
Í dag klæjar mig út um allt og er með tvö horn á enninu.
Indriði 7.5. 2008 ---
og þú segir...(0)
gfz - í sátt við menn og málleysingja
jájá, í augnablikinu er maur að spássera um skrifborðið mitt
Indriði 6.5. 2008 ---
og þú segir...(0)
atburðir
Eftirfarandi atburðir hafa sett mark sitt á líf mitt undanfarið, í öfugri tímaröð:
steiktar hrísgrjónarestar með kalkúnaleggjum og grænmeti sem ekki er lengur boðlegt að borða ferskt (í kvöld).
labbitúr um Westur-Berlín, skoðaði Tiergarten og norrænu sendiráðin. Notalegasti labbitúr. Þeir sem segja að vesturpartar Berlínar séu ekki nægjanlega hipp og kúl (og þeir eru allnokkrir) hefðu gott af því að hysja mosagrónu mussuna sína upp fyrir hæla og njóta sólskinsins í Tiergarten. Bráin á mér lyftist í það minnsta töluvert við það. (laugardagur, og svona almennt bara í lífinu).
"kínverskur" karríréttur með hrísgrjónum (gærkvöld), hrísgrjónin kláruðust ekki.
kvaddi foreldra mína, en nennti ekki að fylgja þeim útá lestarstöð afþví þau lögðu af stað löngu áður en lestin átti að fara, svo ég hefði þurft að bíða vandræðalega lengi á brautarpallinum (föstudagskvöld).
naut heimsóknar foreldra minna, sem dvöldu hér í fjóra daga. Fórum upp í Reichstag, þrömmuðum um berlín, borðuðum fullt af gómsætum mat. Það er gott að hafa foreldra sína í heimsókn (mánudagur til föstudags).
var á
ársfundi samtaka evrópskra jarðvísindamanna, þar sem ég, við mikinn fögnuð viðstaddra, stóð fyrir framan veggspjald og útskýrði rannsóknir undanfarinna mánaða. Er nú félagi í áðurnefndum samtökum. (13. til 18. apríl).
Indriði 27. 4. 2007 ---
og þú segir...(0)
páskalambið
jájá, það var alveg gott. Eiginlega alveg frábært. Hins vegar náðist ekki að klára það á páskadag. Nú á þriðja degi er enn ekkert fararsnið að sjá á því, hvorki í átt til Heljar né heldur upp til himna eða Guðs Föður Almáttugs.
Ég er þegar farinn að kvíða kvöldmatnum á morgun.
Indriði 25. 3. 2008 ---
og þú segir...(2)
en ég mun aldrei aldrei aldrei gefast upp NEI NEI
því um tíma og eilífð fæ ég frægan sigur