indriði sleppir sér

leiðindin * um mig * myndir * tenglar * gamalt hí dót * kort
ábyrgð
Á meðan nágranni minn, hún Frau Koza, er í sumarfríi ásamt dóttur sinni, hefur mér enn á ný verið auðsýnt það traust að vera falin umsjá og fóðrun samkynhneigðu gælukanínanna þeirra.

Það urðu töluverðar sviptingar þegar ég henti káli, gulrótum og gúrkum inn í búrið áður en ég fór í vinnuna í morgun.

Ég á allt eins von á því að þeir verði búnir að mynda alveg splunkunýjan meirihluta þegar ég kem heim á eftir.

Indriði 14. 8. 2008 --- og þú segir...(0)
sprengja
maður er alltaf minntur á það öðru hvoru að fyrir ekki svo löngu síðan geisaði hér stríð. Reglulega koma tilkynningar á starfsmannapóstlistann þess efnis, að verktakar hafi grafið niður á sprengju og þess vegna sé hin eða þessi gatan í Potsdam lokuð fram eftir degi.

Nú í morgun fannst t.d. ensk 250 kílóa sprengja við brúna yfir Havel, rétt við aðalbrautarstöðina í Potsdam. Brúin hefur verið lokuð í allan dag, búið er að rýma húsin í kring og loka götum. Aðalbrautarstöðin er inni á lokunarsvæðinu, svo ég þarf að labba á næstu brautarstöð (ca. hálftími) eða taka þangað pínkulítinn strætó eða sporvagn, þar sem ég mun vafalítið fá að njóta handarkrikalyktar úr þessum nokkur þúsund manns sem venjulega taka lestina til Berlínar á þessum tíma dags.

Ég get bara hreinlega ekki beðið.

Indriði 4.8. 2008 --- og þú segir...(0)
Obama
Var að koma frá Tiergarten þar sem ég hlustaði á Barack Obama halda framboðsræðu. Hlusta, segi ég, þurfti nefnilega að gera mér að góðu að horfa á hann á sjónvarpsskjá (svona 1000"), því ég varla sá grilla í sviðið í fjarskanum - komst ekki nær fyrir hinum 200.000 sem eins og ég ákváðu að skella sér og sjá hvað Obama hefði að segja, hann er jú sagður vera besti ræðumaður síðan Júlíus Sesar var upp á sitt besta.

Og það er bara ýmislegt til í því. Obama er án vafa besti ræðumaður sem ég hef heyrt, svona í beinni. Flutti ræðuna af eldmóð, þessum hálf-músíkalíska ryþma sem hann er þekktur fyrir og virðist draga til sín athyglina eins og svarthol. Ég hafði það á tilfinningunni að allir 200.000 áhorfendurnir gætu varla beðið eftir næstu setningu.

Jafnvel athyglisverðara en seiðandi flutningurinn var hins vegar efni ræðunnar. Hann lagði út af loftbrúnni til Berlínar, og hvernig Ameríkanar og (vestur)Þjóðverjar hefðu, einungis þremur árum eftir að hafa barist á banaspjót í seinni heimsstyrjöld, snúið bökum saman þegar Stalín reyndi að svelta V-Berlín til hlýðni. Athyglisverð fannst mér áhersla hans á að þó flugvélarnar hafi komið með mat en ekki sprengjur hafi þær samt verið afar áhrifamiklar gegn kommúnismanum, og grunnurinn sem það skapaði orðið til þess að Berlínarmúrinn féll rúmum 40 árum seinna, og tekið með sér múra og járntjöld um allan heim.

Svona skoðanir vildi ég gjarnan heyra úr hvíta húsinu í Washington, það væri ágætist tilbreying við "we-will-hunt-them-down-and-kick-their-asses" stautið sem borist hefur þaðan síðustu árin.

Áfram hélt hann og sagði að einmitt vegna þess að múrar hefðu fallið fengju fleiri vandamál á sig alþjóðlegan blæ - flugræningarnir 11.9.2001 lögðu á ráðin í Hamborg en réðust á New York, brennsla eldsneytis í Ameríku og Kína bræðir ís á heimsskautunum og setur önnur lönd á kaf o.s.frv. - og það væri verkefni þessarar kynslóðar að leysa þau, ekki hvert í sínu horni heldur í sameiningu. Í Berlín sagði hann söguna einmitt hafa sýnt, að sameinuð geti heimsbyggðin tekist á við og leyst hverja þraut.

Hann dansaði nokkuð skemmtilega milli þess að snerta á málum sem fyrirsjáanlega yrði vel tekið í Þýskalandi og þess sem hann verður að segja (eða má ekki segja) því vandlega er fylgst með honum frá Ameríku. Þannig var vel klappað fyrir honum þegar hann minntist á metnaðarfull markmið Þjóðverja í loftslagsmálum, en heldur minna þegar hann fór fram á að Evrópumenn sendu fleiri hermenn til Afganistan.

Til að bæta fyrir þau ummæli sín að aðgerðir Bandaríkjamanna á alþjóðavettvangi undanfarna áratugi hafi sumar verið misráðnar og ekki alltaf endurspeglað til fulls þann góða hug sem að baki lá hnýtti hann næstu setningu strax aftan við, án þess að gefa áhorfendum færi á klappi: "I Love America", með ákaflega þungri áherslu á "Love". Það kemur væntanlega í veg fyrir að myndbandsbútar af honum (hugsanlega fánanælulausum!!) að tala illa um Banaríkin undir dynjandi lófataki evrópskra hryðjuverkamann og Gutmenschen fari á kreik á netinu.

Nú verður hann bara að vinna kosningarnar, og svo er að sjá hvaða efndir koma á eftir öllum þessum fallegu orðum

Indriði 24. 7. 2008 --- og þú segir...(2)
on popular demand
mánudagur, óskaplega mikill mánudagur í dag eitthvað.

Indriði 21. 7. 2008 --- og þú segir...(1)
áttfættar ófreskjur
Þetta er líklega ein allra besta bíómynd sem ég hef séð í langan tíma.

Indriði 14.6. 2008 --- og þú segir...(1)
staða stærðfræðings

Indriði 12.6. 2008 --- og þú segir...(1)
manneldisóráð
ég er ekki viss um að það viti á gott, þegar fituskánin á gleraugunum byrgir manni svotil fullkomlega sýn á nýsteiktan matinn.

Indriði 23. 5. 2008 --- og þú segir...(0)
of mikið gaman
já, að sjálfsögðu hefndist mér fyrir allt þetta gaman um daginn, og var umhendis sendur kokteill af alls kyns krankheitum til að jafna reikninginn minn í gleðibankanum.

Það getur bara ekki verið hollt að drekka svona mikið te!

Indriði 19.5. 2008 --- og þú segir...(0)
hipp OG kúl
hvítasunnuhelgin (löngu) liðin. Fékk ágæta heimsókn, en Hr. Dr. Cand. Ing. Petersson kíkti í heimsókn, og á Hvítasunnudag bættist besti plötusnúður vestan atlantsála í hópinn. Kíktum í hundsrassinn Brandenburg an der Havel, og á einn af loftvarnarturnum/loftvarnarbyrgjum Berlínar, sem eru einhverjir svakalegustu steinsteypuklumpar sem ég hef augum litið. leiðsögn um byrgin innan í ferlíkinu eru hérmeð komin á mína dagskrá.

Svona inn á milli svona túristaaktivítet var svo brugglist heimamanna gerð skil, og tékkað á því heitasta sem er að gerast í tónlistarlífi borgarinnar, en þar mun ýmislegt vera á seiði.

Indriði 17.5. 2008 --- og þú segir...(0)
kaninchenzuchtbeauftragter
Mér hefur verið falin sú ábyrgðarfulla staða að sjá um að fóðra kanínur nágranna minna yfir helgina.

Indriði 9.5. 2008 --- og þú segir...(0)
fólk
*** markaðsstjórinn
*** villi og eva
*** bjarki og linda
*** svanur
*** mæja
*** mæja og nökkvi
*** rúnar örn
*** kristín
*** brynjar
*** ólöf hanna og hilmar
*** sissi und tom
*** maggi og ingibjörg
*** davíð
*** óli og hólmfríður
*** jóhanna og palli
*** guðlaug og svenni
*** henning emma og salka
*** matti
*** úlfar
*** baldur
*** snæbjörn
*** harpa
*** ingimar
*** hörður
*** sigfús og edda
*** finney rakel
*** sindri
*** sigrún og erling
*** ptosis

*** rss fyrirsagnir
*** (eld)gamalt blogg.
*** ekki eins gamalt blogg
*** óheyrilega gamalt blogg
Heimilisfang og símanúmer:
Pestalozzistrasse 3
10625 Berlin
Heimasími: 0049 30 55102250
Gsm: 0049 163 2348152
Gsm: 0049 174 7514582

rafpóstur: indridi.einarsson hjá gmail punktur com
msn: indridi hjá indridi . net


talatalatalatalatala
hesturinn minn hann heitir blesi
höfum við sömu lifað árin
ég held áfram en hún styttist nú
óðum leiðin fyrir klárinn